XXX Rottweiler Hundar - Bent nálgast lyrics

Published

0 323 0

XXX Rottweiler Hundar - Bent nálgast lyrics

(Verse 1: Bent) Þú heyrir rímu mína einu sinni og þú færð hana á heilann Heyrir hana einu sinni enn og eina sem kemst að er Rottweila Á hverju götuhorni ferðu að sjá ásjónu mína Innan skamms ertu farinn að efast um geðheilsu þína Þú heyrir rödd mína í hausnum á þér og heyrir að ég er orðinn æstur Fer að ásækja þig í draumum og aðdáun þín breytist í ofshræðslu Þú ert orðinn strengjabrúða og þú veist að ég er yfir þér Þú getur flúið en þú getur aldrei falið þig fyrir mér Þú ert á leið til sturlunnar þannig tek þig af taugunum Getur aldrei gómað mig því þú sérð mig ekki fyrr en þú lokar augunum Þú fjarlægist raunveruleikann með hverju orði að mínum munni Ef Freddie Kruger væri til, myndi hann dreyma matraðir um mig Nú ertu orðinn holdgervingur illsku og í gegnum þig við myrðum Eru ekki í víðu heldur kyrtlum, er við ekki yrkjum heldur kyrjum Rímur af mínum syndum gefinn út í fimmtán bindum Veruleikafirrtur, rís úr kist, fyrstur, anti kristur Nú er sturlunin farinn að dreifast sem plága og allir mína rímu syngja Og ég leiði her uppvakninga og geðsjúklinga Með stanískum rímum drepið ófáa en enn ég tungu tálga Nostradamus spáði um komu mína Helter Skelter Bent nálgast (Chorus: Bent x2) Skapaði heiminn á sjö dögum og eyði honum á jafn mörgum Náttúruhamfarir á fyrsta degi og engisprettur á örðum Þriðja, fjórða, fimmta og sjötta mun ég bæta við ykkur kvölunum Kem svo sjálfur á sjöunda degi til að ráða ykkur af dögunum (Verse 2: Bent) Ég er Hann, ég er Jahve, Jah, ég er fokking Óðinn Fokk flæðismetafor mínar rímur eru syndaflóðið Eftir battl, ég heyri aldrei klapp, en ég elska grátina Til helvítis með jarðneskar eigur við skulum battla upp á sál þína Þú veist ekki í hverju þú lendir er koman er fyrir hendi Hlustaðu á rímurnar aftur á bak og þú heyrir djöfullegar athugasemdir Og jafnvel Auxpan öskrar á eftir mér að ég sé viðundur Og þeir sem byrja að fíla mig eru kallaðir djöfladýrkendur Listamaðurinn fyrr um þekktur sem Bent til þess að hrista upp í hlutunum Og nýja nafnið mitt er fimmhyrnd stjarna með hring utan um Andstæðingarnir grípa ekki hljóðnemann þeir grípa í kross og beina honum að mér Og enginn stígur upp án Biblíu og með hvítlauk um hálsinn á sér En mig langar til að verða frægur rappari, fá samning og meika það En sviðsframkoman mín er þannig að Marilyn Manson myndi ekki einu sinni mæta á tónleika Hatur mitt er hreint, ríf úr mér svart hjartað til að sýna hversu ég reiður er Mun aldrei róast fyrr en það er endurvaktar mannfórnir til heiðurs mér (Chorus: Bent x2) Skapaði heiminn á sjö dögum og eyði honum á jafn mörgum Náttúruhamfarir á fyrsta degi og engisprettur á örðum Þriðja, fjórða, fimmta og sjötta mun ég bæta við ykkur kvölunum Kem svo sjálfur á sjöunda degi til að ráða ykkur af dögunum