Svavar Knútur - Dansa lyrics

Published

0 201 0

Svavar Knútur - Dansa lyrics

Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga og bleikar kýr sem dansa fram á nótt. Við skulum vera góð og blíð, því senn líður að sláturtíð og dansa, það verður dansað. Dansa, hvað er betra en að dansa? Vetrarnóttin köld og dimm en bráðum læðist sólin inn og dansar fram á nótt. Þá hverfa ljótar hugsanir og hörfa allir skuggarnir og dansa, þeir munu dansa. Dansa, hvað er betra en að dansa? Allt sem hvarf og allt sem dó mun bráðum hulið undir snjó sem dansar fram á nótt. Allar sorgir, öll mín eymd mun bráðum verða grafin gleymd og dansa, við munum dansa. Dansa, hvað er betra en að dansa.