Solstafir - Nón lyrics

Published

0 136 0

Solstafir - Nón lyrics

Sólbrot yfir nátthaga, Læðist sifji nætur, stelur minni sálarró. Þögnin þung sem blóð, Brestur tónn eitt sinn f*gur. Kyrrð í vetrarríki. Myrkrið mýkir glætan gul, Gæðir kuldann hlýjum yl er nótt fellur á ný, Nóttin þung sem blý. Fönnin kæfir sumarilm. Vetur tekur yfir. Vonin kom með vorinu En lifði ekki lengi hér á Góumánuðum, Dó í ánauðum, Stoltið drap þá veiku von. Kyrrð í vetrarríki. Rökkvar yfir lífi okkar, Úr fjarlægðinni fögur er ástin vorboðin, Hjartans vorboðinn, Nú grafin er í fönn. Vetur tekur yfir. Mjúkir tónar mosans sofa í djúpu vetrarhúmi, Dúnmjúk skýin étin upp af nöprum grámanum. Sefur illum svefni, í hvaða litum dreymir þig? Læðist litlaus nóttin kannski inn í huga þinn? Ekki fann ég guð í gömlu bókaskruddunum, Né hamingju í flösku, ekkert lýsti mína leið. Drápu niður fæti illar draumfarir. Samviskan nagar sálarhræ í illri neyð.