Skálmöld - Niðavellir lyrics

Published

0 295 0

Skálmöld - Niðavellir lyrics

Niðavellir, náhvítur máninn skín Dvergahellir, dulúð þér villir sýn Sindradætur, synir og börnin öll Vetrarnætur, verma þau klettafjöll Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa Komið inn í hellinn því að hér, hér er gott að sofa Galdrastafir, grafnir í stóran stein Dvergagrafir, dysjar og gömul bein Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal Niðamyrkur, nær inn í gullinn sal Leggist niður börnin mín, já, stór er okkar stofa Steingólfið er tandurhreint og hér, hér er gott að sofa Trónir á mergi tinnugler Tindar úr bergi háir Sindri og Hergill halla sér Hér sofa dvergar gráir Heyr, mín kæra hefðarfrú Hér er gott að sofa Á sig taka náðir nú Niðahjón og börnin þrjú Þegar heyrist þrumugnýr Þór við skulum lofa Okkur geymir hellir hlýr Hér er gott að sofa Náinn syngur næturljóð Núna sefur dvergaþjóð