Skálmöld - Múspell lyrics

Published

0 168 0

Skálmöld - Múspell lyrics

Kvika streymir og kraftar losna Klettar brenna, (klettar brenna) Barnið dreymir en taugar trosna Tárin renna (tárin renna) Bráðna steinar og bergið flýtur Brostnir draumar, (brostnir draumar) Ljósið veinar og loginn hvítur Landið kraumar, (landið kraumar) Bálið sem veldur bardögum Bjarma á kveldið kastar Surtur fer heldur hamförum Hér sefur eldur fastar Jötnar æða um jörð í molum Jöklar gráta Ísinn bræða á æstum kolum Æpir hnáta Móðir huggar þar mædda dóttur Múspell f*gnar (Múspell f*gnar) Dansa skuggar er dofnar þróttur Dagur þagnar (Dagur þagnar) Þú deyrð í nótt! (Himinninn er hulinn sóti Hraunið rennur okkur móti Svartnætti til allra átta Illt er myrkur Múspellsnátta) (Finnum hvernig fætur svíða Feigir eftir okkur bíða Saman munum lífið láta Lítil rödd er hætt að gráta Ryðst úr sprungum, gjám og gjótum Gríðarbál í risafljótum Loki gefur lausan tauminn Leikur sér við stríðan strauminn) Liggjum við á litlu skeri Lyftist glóðin nær Sárt að hérna beinin beri Barnung dóttir kær Loks ég finn að lítill skrokkur Lætur eftir sitt, (lætur eftir sitt) Hraunið breiðir yfir okkur Elsku barnið mitt, (elsku barnið mitt)