Skálmöld - Gleipnir lyrics

Published

0 212 0

Skálmöld - Gleipnir lyrics

Undan Loka Fenrir fæddist, fullur hroka víst var sagt. Er var þoka þá hann fæddist, þungbært ok á heiminn lagt. Nú var gaumur að því gefinn, greri aumur hvolpur fljótt. Tíminn naumur, enginn efinn, á hann tauminn þyrfti skjótt. Fyrrstan Læðing fengu goðin, Fenri þræði komu á. Úlfur skæður, ljótur, loðinn, leikinn bræði sleit hann þá. Þegar Drómi Fenri festi falskan dóm þá úlfur hlaut. Því með klóm og þrumubresti þennan fróma fjötur braut. Kattarins dynur, konunnar skegg, kynngi mína yfir legg. Bjarnarins sinar, bjargsins rætur, bíðum nú í skjóli nætur. Fuglsins hráki, fisksins andi, fyrir dverg er hægur vandi. Mánuð gekk um margar götur, mér að launum varð sá fjötur. Fjöturinn er fjötrum grennri, fágæt, göldrótt dvergasmíð. Í Lyngva áður lögðu Fenri, laus hann veldur orrahríð. Hef í mínum höndum Gleipni, horfi mót glyrnum tveim. Treysti á Óðin, Tý og Sleipni, tak mig þar og aftur heim. Sá fjötur er öðrum fjötrum grennri, fágæt og göldrótt dvergasmíð. Í Lyngva þeir áður lögðu Fenri, laus hann nú veldur orrahríð. Hef ég í minum höndum Gleipni, horfi á móti glyrnum tveim. Treysti á Óðin, Tý og Sleipni, takið mig þar og aftur heim.