Skálmöld - Eldur (Fire) / Part 4 Of Millenium Songs lyrics

Published

0 234 0

Skálmöld - Eldur (Fire) / Part 4 Of Millenium Songs lyrics

Eldurinn logar langt, langt niðri í jörðu, leitar að opinni slóð. Æðir um ganga, grefur sér leiðir, glóandi ólgandi blóð. Eldurinn logar langt, langt niðri í jörðu, leitar að opinni slóð. Æðir um ganga, grefur sér leiðir, glóandi, ólgandi blóð. Spýtist úr gígum með geigvænu öskri, grásvörtum bólstrum af reyk. Leiftrandi steinar, Logandi hraunið, Lifandi kraftur á leik. Spýtist úr gígum með geigvænu öskri, grásvörtum bólstrum af reyk. Leiftrandi steinar, Logandi hraunið, Lifandi kraftur á leik. Handan við sortann, háskann og mökkinn sem heldimmur leggst yfir ból. dansar á himni, dátt yfir landi, dirfskunnar leiftrandi sól. Handan við sortann, háskann og mökkinn heldimmur leggst yfir ból. Dansar á himni, dátt yfir landi, dirfskunnar leiftrandi sól. Eldurinn logar langt, langt niðri í jörðu, leitar að opinni slóð. Æðir um ganga, grefur sér leiðir, glóandi, ólgandi blóð.