Sálin Hans Jóns Míns - Spor lyrics

Published

0 262 0

Sálin Hans Jóns Míns - Spor lyrics

Hvað er þetta líf nema andartak, sem líður hjá - ævintýraleit sem að fær þitt hjarta til að slá? Finnur'ekki freistingar toga í? Örlar ekk'á móð sem er eldur í? Þú átt næsta leik, ekki hætta við að horfa á. Láttu ekki seinna eitt lítið ef angra þína sál - stígðu næsta skref. Láttu verð´af því, annars ertu í sömu sporum endalaust. Þegar ævi þín er öll þá er það of seint. Láttu verð´af því, viltu vera í sömu sporum endalaust? Þó þú flytjir ekki fjöll þá getur þú reynt, þá getur þú alltaf reynt. Áttu ekki von innst í huga þínum, eða hvað? Eina litla ósk, sem í dagsins önn kemst ekki að. Gamall getur sagt: "Já ég hefði átt að lifa mínu lífi á annan hátt". Láttu verð´af því, annars ertu í sömu sporum endalaust. Þegar ævi þín er öll þá er það of seint. Láttu verð´af því, viltu vera í sömu sporum endalaust? Þó þú flytjir ekki fjöll þá getur þú reynt, þá getur þú alltaf reynt.