Sálin Hans Jóns Míns - Láttu mig vera lyrics

Published

0 195 0

Sálin Hans Jóns Míns - Láttu mig vera lyrics

Það er af sem áður var —annar heimur en í gær. Þó ég losi um ýmis leyndarmál er ég sáralitlu nær. Andi minn er opið sár og ég engist um af kvöl. Eftir umhugsun bind ég endahnút —ég á enga aðra völ. Ég mun ekki leggja á herðar þínar fleiri lóð. Ég mun ekki gera þér annan grikk, því lífið liggur við. Láttu mig vera. Leiktu við aðra en mig. Láttu mig vera og losaðu um. Láttu mig vera. Leystu þig viðjunum úr. Láttu mig vera og lifð' upp á nýtt. Það er ólga inní mér og ég ærist smátt og smátt. Ég er umvafinn öllum orðunum —en ég segi ósköp fátt. Þessi sál er kaunum sett eftir samviskunnar bit. Það er ótrúlegt eftir allt sem var að þú ennþá hafir vit. Ég mun ekki leggja á herðar þínar fleiri lóð. Ég mun ekki gera þér annan grikk, því lífið liggur við. Láttu mig vera. Leiktu við aðra en mig. Láttu mig vera og losaðu um. Láttu mig vera. Leystu þig viðjunum úr. Láttu mig vera og lifð' upp á nýtt. Hann var dimmur þessi dagur, -þú mátt dæma það á mig. Það mun rísa annar f*gur -já þú munt finna þig, og feta nýja leið.