Sálin Hans Jóns Míns - Ás í hverri ermi lyrics

Published

0 223 0

Sálin Hans Jóns Míns - Ás í hverri ermi lyrics

Það er ás í hverri ermi, —alveg óteljandi spil. Það er eyra inní veggnum, einhver hulinn bak við þil. Fyrir utan eru augu sem að eygja þína sál. Svo er maður uppá þaki sem að tekur af þér mál. Það er ormur inní epli, —þú mátt eiga vona á því. Svo er einhversstaðar pakki sem að ekki neitt er í. Það er ótal margt að varast, —já þú gætir fengið flís. Þú ert viðbúin(n) því versta því að voðinn hann er vís. Mér er sam´um stað og stund, fögur orð og fyrirheit. Mér er sam´um stöðu stjarna, eða dularfulla drauma. Ég vil lifa mínu lífi þó ég láti það í nótt. Þegar dagurinn er dáinn þá er drungi út um allt. Og á einu augabragði verður ótrúlega kalt. Já þú gætir orðið úti, eða endað ein(n) og sér undir allrahanda fargi yfirhöfuð hvar sem er. Mér er sam´um stað og stund, fögur orð og fyrirheit. Mér er sam´um stöðu stjarna, eða dularfulla drauma. Ég vil lifa mínu lífi þó ég láti það í nótt. Það er allstaðar eitthvað sem að úrskeiðis fer. Samt er óþarfi að ætl´að loka sig af.