Sálin Hans Jóns Míns - Á nýjum stað lyrics

Published

0 867 0

Sálin Hans Jóns Míns - Á nýjum stað lyrics

Þegar allt er gengið niður og þankarykið sest á ný heyrist kunnuglegur kliður, úti er friður, ró fyrir bí. Það er víst of fljótt að f*gna, fokið er í skjólin flest. Hratt og vel ég reiði magna, þau munu þagna. Sólin er sest. Þá trúi ég og treysti' á það að takist eins og stefnt var að, við fáum hugi sameinað á nýjum stað. Ég trúi því að nú sé lag, það komi tíð með bættum hag og dagur eftir þennan dag á nýjum stað. Nú treysti ég á þig. Þú treysta mátt á mig. Í fjarskanum er felustaður, forlaganna höfuðból. Það veit að vísu enginn maður hvers það er hagur, hver þar á skjól. Allt í einu gerist undur, á ögurstundu hetjudáð. Sannarlega náðarmundur en eftir sem áður dýr eru ráð. Þá trúi ég og treysti' á það að takist eins og stefnt var að, við fáum hugi sameinað á nýjum stað. Ég trúi því að nú sé lag, það komi tíð með bættum hag og dagur eftir þennan dag á nýjum stað. Nú treysti ég á þig. Þú treysta mátt á mig. Ég trúi því að nú sé lag senn komi tíð með bættum hag og dagur eftir þennan dag á nýjum stað. Þá trúi ég og treysti' á það að takist eins og stefnt var að við fáum hugi sameinað á nýjum stað. Ég trúi því að nú sé lag, það komi tíð með bættum hag og dagur eftir þennan dag á nýjum stað. Nú treysti ég á þig. Þú treysta mátt á mig. Nú treysti ég á þig. Þú treysta mátt á mig.