Sálin Hans Jóns Míns - Tóm tilviljun lyrics

Published

0 206 0

Sálin Hans Jóns Míns - Tóm tilviljun lyrics

Þegar að nóttin æðir yfir á ný eygi ég vonir og varlega smeygi mér í. Smám saman færist ég allur í aukana oh, oh, oh, undarleg tilfinning grípur og grefur sér leið. Þýtur í laufi, svignar einmanna strá, skuggaleg andlit, augu fara á stjá. Ég geng eftir götunni, speglast í malbiki oh, oh, oh gái til veðurs og greiðlega held mína leið. Þá allt í einu rofar til svo ótrúlega fljótt. Ég hitti hana af tómri tilviljun. Mæti henni, rekst á hana af tómri tilviljun. Já ekki er allt sem sýnist segi ég þér. Núna ég bíð uns máninn mætir á ný. Á meðan ég tálga spýtu teljandi ský. Ég hangi á horninu, speglast í glerinu oh, oh, oh, hinkra og vona að skóhljóðið heyrist í kvöld. Ég reyni að standa í skugganum en sumir skynja allt. Ég hitti hana af tómri tilviljun. Elti hana út um allt af tómri tilviljun. En ekki er allt sem sýnist segi ég þér.