Sálin Hans Jóns Míns - Svartir fingur lyrics

Published

0 278 0

Sálin Hans Jóns Míns - Svartir fingur lyrics

Svartir fingur við flygilinn fannhvít klæðin, söngvarinn hefur fólkið í hendi sér horfir yfir salinn og samtímis í augu mér Hann segir: "Feður, mæður, stokkum spil, systur, bræður, við megum til. Bugumst ei, hvergi hvika má, það er brýnt að átta sig á því hvað hér gengur á. Það þarf að snúa við blaðinu og dæminu. Það þarf að taka til hendinni af alefli" hann ítrekar, "það þarf að söðla um, það þarf að byrj'upp á nýtt" Handan mæra er maðurinn fleir'og annað er líkaminn. Og hann mælir og meinar það "Mjög er brýnt að átta sig á því hvað hér amar að. En sennilega erum við ennþá stödd á sama stað. Það þarf að snúa við blaðinu og dæminu það þarf að taka til hendinni af alefli" hann ítrekar, "það þarf að söðla um það þarf að byrj'upp á nýtt Það þarf að snúa við blaðinu og dæminu Það þarf að taka til hendinni af alefli. Við skulum breyta og brúa bil, við megum til. Við skulum útrýma afbrýði með ástinni Ég árétta, við skulum söðla um, það þarf að byrj'upp á nýtt. Það þarf að söðla um, eflast í andanum, við skulum byrj'upp á nýtt"