Sálin Hans Jóns Míns - Hjá þér lyrics

Published

0 272 0

Sálin Hans Jóns Míns - Hjá þér lyrics

Þegar kviknar á deginum og í lífinu ljós, þegar myrkrið hörfar frá mér þá er eitthvað sem hrífur mig líkt og útsprungin rós. Þá vil ég vera hjá þér Þegar geng ég í sólinni mitt um hábjartan dag, litafegurð blasir við mér, þegar heimurinn heillar mig líkt og töfrandi lag þá vil ég vera hjá þér. Ég vil bæði lif'og vona, ég vil brenna upp af ást, ég vil lifa með þér svona, ég vil gleðjast eða þjást. Meðan leikur allt í lyndi líka þegar illa fer, meðan lífið heldur áfram þá vil ég vera hjá þér. Meðan skuggarnir stækka og ýta húminu að, gamall máninn bærir á sér, vil ég eiga andartak inni á rólegum stað þá vil ég vera hjá þér. Ég vil bæði lif'og vona, ég vil brenna upp af ást, ég vil lifa með þér svona, ég vil gleðjast eða þjást. Meðan leikur allt í lyndi líka þegar illa fer, meðan lífið heldur áfram þá vil ég vera hjá þér. Ooh, meðan leikur allt í lyndi líka þegar illa fer, meðan lífið heldur áfram þá vil ég vera hjá þér. Þegar slokknar á deginum yfirþyrmandi nótt stormar fyrir stjarnanna her. En það bítur mig ekkert á og ég sef vært og rótt ef þú vilt vera hjá mér. Þá vil ég vera hjá þér.