Sálin Hans Jóns Míns - Ábyggilega! lyrics

Published

0 367 0

Sálin Hans Jóns Míns - Ábyggilega! lyrics

(Einn, tveir!) Ég veit um konu sem kemur á óvart hún er í Krabbanum, alveg eins og þú, já. Hún hefur áhuga' á indversku jóga og öllu því sem að lýtur að trú. Varstu' ekki alltaf að kvarta og kveina þú vildir konu með rísandi ljón. Þið eigið ábyggilega vel saman og verðið eflaust á endanum hjón. Nú vek ég athygli þína á einu þú hefur mestalla tíð verið staur. Þú gætir komist í sjúklegar álnir og allaf átt í vasanum aur. Já, hún á helling af silfri og seðlum og hefur herbergisþernu og þjón. Þið eigið ábyggilega vel saman og verðið eflaust á endanum hjón. Nananana, nananana Það er aðeins eitt sem mér láðist að nefna hún hefur útlitið ekki með sér. Því hún er ófríð og allnokkuð skeggjuð og ekki öldungis fönguleg ber. En það er sjálfsagt í stakasta lagi því að þú sérð varla hálfa sjón. Þið eigið ábyggilega vel saman og verðið eflaust á endanum hjón. Nananana, nananana Þú varst alltaf að kvarta og kveina þú vildir konu með rísandi ljón. Þið eigið ábyggilega vel saman og verðið eflaust á endanum hjón. Nananana, nananana