Sálin Hans Jóns Míns - Þú fullkomnar mig lyrics

Published

0 250 0

Sálin Hans Jóns Míns - Þú fullkomnar mig lyrics

Það rofar til inn' í mér Og lífið tekur lit Veit nú hvað gefur mér mest Og tilverunni glit Aldrei var sólin svo skær Né fugla fegurri hljóð Mér finnst ég skilja í dag öll heimsins ástarljóð Þú fullkomnar mig ég finn að ég er annar enn ég var Þú ert við spurnum mínum lokasvar Lyftir mér upp, lýsir mér leið Ég vegsama þig Og vonir mínar bind ég aðeins þér Í blíðu jafnt sem stríðu fylgdu mér í huga og hér, ævinnar skeið Liðið er grafið og gleymt Og raunir frá í gær Loksins ég veit upp á hár Hvað hjartað í mér slær Og þó að ég ferðist um lönd þú ert mín heimahöfn Norðurljósin skrifa í kvöld í hvolfið okkar nöfn Þú fullkomnar mig ég finn að ég er annar en ég var Þú ert við spurnum mínum lokasvar Lyftir mér upp, lýsir mér leið Ég vegsama þig Og vonir mínar bind ég aðeins þér Í blíðu jafnt sem stríðu fylgdu mér í huga og hér, ævinnar skeið Aldrei var sólin svo skær Né fugla fegurri hljóð Mér finnst ég skilja í dag öll heimsins ástarljóð