Poetrix - Vegurinn til glötunnar lyrics

Published

0 309 0

Poetrix - Vegurinn til glötunnar lyrics

Ég er löngu hættur að hlakka Til þess að ala upp eigin krakka Til hvers að eignast börn Leyfa þeim að fæðast til að kveljast Að fá að koma í heim þar sem fólk lýgur uppá hvert annað Til að láta blöðin seljast? það er ekki til matur handa öllum Dópsalar selja smábörnum e-pillur í pez-köllum Eyðum milljörðum í markaðsetningu á hæfileikalausum stjörnum Ekki króna handa svöngum, illa förnum börnum Sem deyja í hrönnum Við eigum heima í heimi þar sem stelpum Litlum og grönnum Er hópnauðgað af lögreglumönnum/ Fjölskyldan neydd til að horfa á Engar áhyggjur, barnaníðingar fá hálft ár á bakvið lás og slá Talið um gáfur og vit Metið svo fólk eftir húðlit Hafið aldrei opnað biblíuna en séð og heyrt er ykkar helgirit Er svona erfitt að trúa að 40 prósent afríkubúa Sé með h.i.v. smit þau fá frí lyf en þau má ekki taka á fastandi maga þau geta ekki innbyrt lyfin þau eru ekki búin að borða í marga daga Við upphefjum líkamsmeiðingar, afleiðingar? Við búum í samfélagi þar sem engin gengur óhultur um götur að næturlagi Feiti krakkinn fer ekki í skólann án þess að allir hinir hlægji Morðin sem við fremjum, ofbeldi eru dauðasyndir Reynum við að stöðva það, nei semjum um það tónlist og kvikmyndir Segjumst vera siðmenntaðir en erum siðblindir Engin virðing fyrir framtíðinni, reynum bara að bjarga eigin skinni öll þessi illskuverk, ég er búinn að fá nóg af þeim Fokk þennan heim! Þú notar alla þína fokking frasa þegar dauðinn kemur ertu alltaf einn Mundu líkkistur eru ekki með vasa þú átt stefnumót og dauðinn er aldrei of seinn Af biturleika ég brenn, útí hálfvitatónlistamenn þið hafið dópað hvað með það? Vegsamið vonlausa ávana Getið ekki fundið ykkur betri málstað en það Að lögleiða maríjúana því miður kemur þessi ósiður niður á okkur öllum Hvað veldur dóp mörgum dauðsföllum? Börn festast í fíkn eins og dýr festast í gildrum Eftir stendur samfélagið okkar Samsett úr sundurbrotnum fjölskyldum þið eruð fyrirmynd þessara krakka það er fyrsti sopinn sem drepur Og þið fáið þau til að smakka ég vara ykkur við þessum ósið það er hægt að drekka og dópa Kannski verður fjör En það er ekki hægt að skrópa í sína eigin jarðarför Spurjiði bara, ég hef svör ég veit um hvað ég er að tala ég hef sjálfur nokkur ljótt ör En afhverju að hafa áhyggjur af mér Ef manni langar að kála sér Getur maður bara bókað bush og blair Sem valda dauða, kvöl og verkjum því þeir hugsa í pundum og dollaramerkjum Hafa aldrei heyrt þennan frasa það eru ekki til líkkistur með vasa Sjúklingar svangir dauðann úr skelinni sleikja En þingmenn eftir hentugleika Taka peninga úr ríkissjóði Sem var aflað sem svita, tárum og blóði Sjórnmálamenn láta kvartanir eins og vind um eyru þjóta Eins og þær væru fölsk nóta Semja reglur sem þeir sjálfir brjóta Menn hljóta að sjá hvað klikkar Láta ka**ann pa**a barnið ykkar Fengi ég að pa**a krakkann Ef ég kenndi honum að skjóta fólk í hnakkann Haldið að þið gerið engar skyssur Skiljið ekkert í því afhverju krakkinn ykkar mætir skólann með byssu ég segi bara það sem þú veist Við getum ekki breyst, ég neita að trúa því Hugsaðu nú, er þetta heimurinn sem þú vilt að barnið þitt Eigi einhverntíma eftir að fokking búa í Skil ekki hvað er á seiði Hvað er málið með öll þessi ómerktu leiði ég er að brjálast úr reiði Við ættum öll að heita ósama því okkur er öllum fokking skítsama þó það sé verið að sprengja líkama Stúlkna og drengja í loft oft á dag Meðan við fáum mat Hugsum við ekki um neitt annað ra**gat En okkar eigið Skítsama hvað þið segið Um að ég geti ykkur ekki dæmt Mannkynið sé ekki alræmt ég hef boðskap fram að færa En þið vísið þessu öllu á bug Eins og þetta væri nauðgunarákæra En mér er slétt Við erum ekki að breyta rétt þó við göngum á gangstétt götunar því við erum öll á veginum til fokking glötunar!