Pascal Pinon - En þú varst ævintýr lyrics

Published

0 178 0

Pascal Pinon - En þú varst ævintýr lyrics

Ég var hin þyrsta þyrnirós, en þú hið unga vín. Ég var hinn blindi, er bað um ljós, þú blys, sem alltaf skín. Ég var sú lind, sem leggur fljótt, þú léttur blær og hlýr. Ég var hin þyrsta, þögla nótt, sem þráði ævintýr. Á bak við fjöllin beið ég þín; ég beið þín út við sund. Ég las þér fyrstu ljóðin mín á lífsins óskastund. Með kross á brjósti, í hvítum hjúp þú komst að hjarta mér; á lífsins ey, á dauðans djúp sló dýrð úr augum þér. Ég var hin þyrsta þyrnirós, en þú hið unga vín, og nóttin kom með norðurljós og nýjan söng til mín. Við höfum töfratjöldin gist, og tíminn leið þar fljótt, en þar var bjart, og þú varst kysst í þúsund og eina nótt. Þó særðir fuglar syngi dátt, er söngur þeirra kvein. Þeir finna til, sem flugu hátt og féllu niður á stein. Og yfir djúpi dimmir fljótt, er dagur burtu flýr. Ég er hin þreytta, þögla nótt, en þú varst ævintýr.