Emmsjé Gauti - Tuttugu og fjórir (24) lyrics

Published

0 157 0

Emmsjé Gauti - Tuttugu og fjórir (24) lyrics

[Verse 1: Emmsjé Gauti] ég hef lært margt, lært að lífið er stutt Einn þriðji búinn, já, það rugl Tuttugu og fjögra, já, það er rugl Reyni að finna sjálfan mig en fer að gefast upp Holdið verður mold, sálin lifir í sögum Tíminn gleymir okkur öllum, nema nokkrum völdum ég fer ekki á morgun, yo, vertu ekki viss Guðni hugsaði það líka, rest in peace Elska kastarann, vona að allir sjái mig áður en að maðurinn með ljáinn kemur loksins til að ná í mig Tuttugu og fjögra, bara barn En eitthvað segir mér að ég verði það alltaf Ekki illa meint, ekki vera stúrin Gefðu mér eitt enn, bara eitt enn, ég er búinn óskipulagt skipulag, ekki eyðileggja kúrinn því ég kúri eins og kisi, ég er hank fokking moody baby [Hook] Tuttugu og fjórir tímar virðast fjara burtu á núinu Svo ég slekk á heilabúinu það væri næsari að svindla aðeins á úrinu því vísarnir þeir ferðast aðeins of hratt, aðeins of hratt Tíminn ferðast aðeins of hratt, aðeins of hratt Vísarnir þeir ferðast of hratt, aðeins of hratt Tíminn ferðast aðeins of hratt, aðeins of hratt [Verse 2: Emmsjé Gauti] Stoltið keyrt í botn, ég ætla að skila mínu Og velja betur eða hætta að treysta vinum mínum því mér langar oft að pása aðeins og chilla pínu því það virðist vera að allir eigi hliðargrímu ég hvísla í spegil, það er enginn sem að skilur betur Og vísa veginn, ætla að lifa af þennan fimbulvetur Og þegar vorar til, skal ég fá mér smá Og skála fyrir hálfvitanum sem ég treysti á Glymur í glösum virðist yfirgnæfa söknuð Ekki fyrr en birtir til að komi raunverulegt rökkur, nei ég reyni að sýna virðingu Sem virðist fjara út þegar nóttin tapar vitinu ég legg höfuðið að ísköldum koddanum Draumur rættist, ég hlýt að vera sofnaður Markmiðið er ekki að verða moldaður því það skiptir engu þegar að ég verð í viðarka**a, moldaður Vakna oft óskýr, þreifa fyrir mér en engin þú Skildi gluggann eftir galopinn svo hún flaug út Reyni að vera betri maður, reyni að vera trúr Og þó mér líði stundum illa þá er lífið ljúft [Hook] Tuttugu og fjórir tímar virðast fjara burtu á núinu Svo ég slekk á heilabúinu það væri næsari að svindla aðeins á úrinu því vísarnir þeir ferðast aðeins of hratt, aðeins of hratt Tíminn ferðast aðeins of hratt, aðeins of hratt Vísarnir þeir ferðast of hratt, aðeins of hratt Tíminn ferðast aðeins of hratt, aðeins of hratt