Átrúnaðargoðin - Varist Eftirlíkingar lyrics

Published

0 119 0

Átrúnaðargoðin - Varist Eftirlíkingar lyrics

[Verse 1 - Gudjon] Ég fer hring eftir hring og ef þér tekst að elta Finnurðu sting eftir sting því ég er textavespa Við erum óskaplega skapandi með sérstakt verklag Bókstaflega sterkir eins og lestrarhestar Þú getur ekki samið neitt, ert alltaf bara tómur Svo þú neyddist til að gerast svaka góður frasaþjófur Hvernig væri að gera eitthvað frumlegt? En ekki bara herma eftir því sem er í umferð Aka frekar nýjan veg og taka eftir merkjunum Og pa**a líka að það sé góður taktur undir textunum Þið eruð allir hermikrákur Og það eina sem þið uppskerið, er gervihlátur Ég get bara ekki setið á mér Þú tapar kúlinu ég finn það á mér, myndi kannski þegja en þú átt bara ekkert inni hjá mér [Chorus 1 - Bragi] Endurvinnið sama gamla efnið ítrekað Náið okkur aldrei, hafið ekki skýringar Eltið trend, skapið ekki nýjungar (Við erum) Átrúnaðargoðin varist eftirlíkingar [Verse 2 -Bragi] Ég fer hring eftir hring og ef þér tekst að elta Finnurðu sting eftir sting því ég er textavespa Við erum óskaplega skapandi með sérstakt verklag Bókstaflega sterkir eins og lestrarhestar Fastir í sömu hugsun, stagglist á gömlum tuggum Sem að duga kannski til að skora stig hjá öfuguggum Hverja haldiði að þið séuð að hneyksla? Meira segja húsmæður í vesturbænum geispa Vil ekki rappa um að ég get lamið þig Mér finnst ég vera sterkari, því að ég get hamið mig Þið getið ekki nálgast okkur Og það eina sem þið uppskerið er kjánahrollur [Hook - Gudjon and Bragi] Ég get bara ekki setið á mér, þú tapar vitinu ég sé það á þér, myndi kannski koma því fyrir þig en efast um að það virki hjá mér [Chorus - Bragi] Endurvinnið sama gamla efnið ítrekað Náið okkur aldrei, hafið ekki skýringaru Eltið trend, skapið ekki nýjungar Átrúnaðargoðin varist eftirlíkingar [Verse 3 - Bragi] Þessir textar ykkar, eru klisjukenndir Og þeir innihalda ekkert sem að situr eftir Lélegt efni sem þið getur ekki markaðssett Held þið þyrftuð almennilegt skemmtikraftaverk [Verse 3 - Gudjon] Okkar orðaleikir, eru voðalegir Sumir liggja í augum uppi en aðra þarf að skoða lengi Eins og gatasigti haldið ekki vatni Við erum eins og númer á treyjum, stöndum undir nafni [Hook - Gudjon] Ég get bara ekki setið á mér þú tapar peningum ég finn þá á mér, svo þú stelur gullmolum sem verða einskis virði hjá þér [Chorus - Bragi] Endurvinnið sama gamla efnið ítrekað Náið okkur aldrei, hafið ekki skýringar Eltið trend, skapið ekki nýjungar Átrúnaðargoðin varist eftirlíkingar X2