Átrúnaðargoðin - Tölfræðilega Séð lyrics

Published

0 121 0

Átrúnaðargoðin - Tölfræðilega Séð lyrics

[Hook - Guðjón] Tölfræðilega séð, er ekki líklegt að þetta fari vel Hvernig heldur þú að þér takist að kreista fram tilfinningar úr mér [Verse: Guðjón] Í stöðugri leit að öryggi veit af öfugri hneigð sem heillast af feigð og eitrar um leið það ból sem við deilum, drekkum það breiðum yfir það leiðum hjá okkur eituráhrifin leikum á okkar eigin hughrif og beislum orkuna, storkum örlaganornum, vöknum í dag og dreymum á morgun. Vökum í dag og gleymum á morgun [Hook 2: Bragi] Tölfræðilega séð, er ekki líklegt að þetta fari vel Heldurðu virkilega að þér takist að draga fram tilfinningar úr mér [Verse 2: Guðjón] Finnur einhvern til að byrja með, svo auðvelt til að byrja með, svo byrja ég að finna mér, seinfeld-rök og forða mér. Reyni samt að halda þér og ætla mér að haga mér en hættir til að hætta mér á tæpasta vað og hrasa, eða að minnsta kosti dragast inn í sama fas og alltaf sama sagan. Sama hvað amar að þá endum við á sama stað á sömu nótum bara ef við drögum andann, titrandi tilfinningar leikum allan skalann. Á erfitt með að höndla svona átök og að forðast að stinga þig í bakið í sjálfsvörn [Hook 2: Bragi] [Verse 3: Guðjón] Ást-Ást-Ástandið er flókið, ef þú starir nógu lengi í myrkrið muntu þá sjá ljósið? Ef þú starir nógu lengi á mynstrið muntu krakka kódið? Forfallinn hvort sem er fallinn fyrir þér svo falleg fyrir mér að ég sé varla fjöllin fyrir þér sem ég þarf að klífa yfir inn í höfðinu á mér til að komast yfir ímyndir, með botnlausar fantasíur og komplexa allt lífið mitt [Hook 2: Bragi] [Verse 4: Guðjón] Alltaf að dansa þennan sambandasamba Einhver samblanda af vanda okkar beggja ekki að leggja af nóg af mörkum svo hvern er ég að blekkja? Í bullandi afneitun, ímyndunarveikur? Ruglandi staðreyndum, ruglandi reitum Er lífið bara leikur eða dauðans alvara? Allt of margar breytur til að leysa jöfnuna Tölfræðilega séð, það hlýtur bara að vera Kannski tímabundin geðveiki sem mér finnst gott að elska? Veit varla hvað ég vil, kannski bara of heimskur Veit varla hvað ég er að reyna að segja lengur [Hook 1: Guðjón ]