Átrúnaðargoðin - Lífið er Strigi lyrics

Published

0 130 0

Átrúnaðargoðin - Lífið er Strigi lyrics

[Verse 2: Gudjon] Er smám saman að missa vitið Og það ekki í fyrsta skiptið Með margfalda persónuleika og finnst eins og þeir séu að reyna að Skipta liði.. Einn vill að ég haldi mínu striki Breiði út seglin og elti vindinn Gisti við hliðina á allskonar liði Og missi mig þar til að syrtir yfir Einn vill að ég snyrti mig Finni mér konu og gifti mig Helst einhverja sem þolir mig Og mögulega nokkurnveginn skilur mig Finni mér vinnu, sinni mínum skyldum Láti duga dýrðarljóma af lífsins litlu sigrum Sem ungur maður með allt lífið að fótum mér Inni í tjaldi á Hróaskeldu að hugsa ertu að djóka í mér? Hvað er lífið annað en þetta hér? Og allir vildu segja mér að ganga einhvern menntaveg Einn fór út í frumskóginn, var hann hugrakkur eða fífldjarfur? Einn réð guide í lystigarð var hann hræddur eða skynsamur? Einn komst heill á leiðarenda braut hans var bein Einn komst heill á leiðarenda en braut samt bein En kæruleysi breytir öllu sem við fáum breytt En hefur stundum liðið eins og lífið mitt sé Groundhog day Vakna þunnur viskubrunnurinn þurrausinn Minningar í rennibraut á fleygiferð um hausinn minn Er tíminn peningar eða er hann eins og vatnið? Djúpt og kalt, en vitund sumra er eins og kaffi Beiskt og svart en keyrir áfram kerfið þar sem svart/hvítir múrsteinarnir mynda gráa veggi Er smám saman að finna vitið Og það alveg í fyrsta skiptið Síðan ég lá inn í tjaldi og fannst eins og andinn minn Væri að skipa fyrir Með margfaldan persónuleika en finnst eins og þeir séu Farnir að verða vinir 10 ár síðan, og ég er ennþá hér því að ég trúi því að allt sé gott sem endar vel [Verse 2: Bragi] Lífið er strigi Og allt saman er lygi Svo bíddu bara og bíddu éttu skít og skríddu Ríddu og hlýddu og Sýndu af þér blíðuhót því þetta er fokking nýmóð æj, æj, ertu orðin eitthvað móð því nú eru orðin meyr Orðin meyr og ég get ekki meir Svo strengdu mig upp á striga og Hýddu og hýddu og Kenndu mér að hlýða því mér finnst það svo næs Getum við gert það sem við gerðum í gær