Asgeir - Sumargestur lyrics

Published

0 280 0

Asgeir - Sumargestur lyrics

Fuglinn minn úr fjarska ber Fögnuð vorsins handa mér. Yfir höfin ægi-breið Ævinlega – flýgur rétta leið. Tyllir sér á græna grein Gott að hvíla lúin bein Ómar söngur hjartahlýr Hlusta ég á – lífsins ævintýr. Fús ég þakka fuglinn minn Fyrir gleði-boðskapinn Þessa ljúfu tæru tóna - tóna Þegar haustar aftur að Af einlægni ég bið um það Að mega syngja sönginn þinn Sumargestur – litli fuglinn minn. Fús ég þakka fuglinn minn Fyrir gleði-boðskapinn Þessa ljúfu tæru tóna - tóna Þú átt athvarf innst í sál Ó að ég kynni fuglamál Skyldi ég lag á lúftgítarinn prjóna.