Asgeir Trausti - Leyndarmál lyrics

Published

0 449 0

Asgeir Trausti - Leyndarmál lyrics

Glitrar næturdögg og geng ég þar með henni grátur hvítvoðungs nú berst frá rauðu húsi. Læðast refahjón og lafir bráð úr kjafti lerkiskógurinn hann fær nú margt að vita. Þegar kóngurinn er með kross í hendi koma hersveitir til að ná í skammtinn svalir nátthrafnar sjá að nú er færi sjúkleg árátta fær þá til að virka. Tifar lífsins blóm ég tóri ef ég nenni tárast silfurberg svo langt frá steinhúsi andar sunnanblær og eflist af lífskrafti enginn maður veit og enginn fær að vita. Þegar kóngurinn er með kross í hendi koma hersveitir til að ná í skammtinn svalir nátthrafnar sjá að nú er færi sjúkleg árátta fær þá til að virka. [x2]