Ari Ma - Te lyrics

Published

0 154 0

Ari Ma - Te lyrics

[Vers 1: Ari Ma] Vakna snemma' á sunnudegi helli vatni ofan' í ketilinn Skelli' honum á helluna - loks er búinn veturinn Dreg frá gluggatjöldin svo að birtan komist betur inn Vorið vökvar vellina, rigningin hún syngur lag Fellur hún í pollana, gárur afar hringlaga Og vatnið fer að sjóða Með telaufin í bollanum, ég sulla ofan' í vökvanum Dropar drynja' á þökunum á glugga kemur móða [Vers 2: Ari Ma & Sylvía] Alveg salla rólegur ég höfði mínu halla Laufin fljóta fallega ég leyfi þeim að malla Ég vil nýta meðvitundar-kraftinn úr þeim allan Yndislega morgunstund! Já alveg laus við galla Svo þægileg og ljúf að þú trúir þessu varla Dagurinn er minn! Já ég veit hvað ég mun bralla Hrollur fer um búkinn og ég klæði mig í lopann Teið mitt er tilbúið ég fæ mér fyrsta sopann [Vers 3: Ari Ma] Hann rennur niður kverkarnar og verkar á mig slakandi Merkilega bragðgóður og sterkur streitu takandi Eftir fimmta sopann er ég algjörlega vakandi Stundin hún er laus við allt sem getur verið þjakandi Gufa liðast upp í loftið vængjum sínum blakandi Rigningin er linnulaus í bárujárni brakandi Ég tylli mér á gólfinu í lótusblóma stellingu Byrja inn í nefinu á einbeitingar-eflingu Hellingur af hugsunum í meðvitundar flæðinu Ég samþykki með hugarró og nýt mín vel í næðinu Færi athyglina mína niður'að bringu svæðinu Segulbylgjur sveipa hjartað mitt með ástarklæðinu Ég festi mína upplifun að eilífu í kvæðinu [Vers 4: Ari Ma & Sylvía] Að finna mig í hjartanu það breytir veru minni Með fiðringinn í blóðinu ég blómstra allur inni Ástarkvika vellur upp í þægilegu gosi Ég sendi hlýjar hugsanir í umfrymið og brosi Hérna' í vesturdalnum fyllist heimurinn af friði Í klettunum er bergmálið frjótt af fuglakliði Í hjartanu ég uppgötvaði trúnna Eilífðin er endalausa augnablikið núna Fyrir þér með virðingu ég höfuð mitt lágt hneigi Ég vil ekki að þú trúir neinu sem ég segi Á meðvitundarbrautinni eru þúsund vegir Og stundum get ég breytt um skoðanir á hverjum degi Inni' í þinni eigin fögru veru svörin sitja Horfðu inn og reyndu' þeirra' að vitja [Vers 5: Ari Ma] Ég býð þér í ferðalag með stoppi í brjóstka**anum Finndu fyrir dropunum og mýktinni í ba**anum Frumur endurnýjast titrandi í líkamsma**anum Með einbeitingar-afli sem við gætum lært af tófunum Færum okkur niður og finnum fyrir lófunum Hjartslátturinn dýrmætur, við ættum ekki að sóa' honum Komdu með mér við skulum týna okkur í móanum Skýin eru döpur og þau gráta yfir hólunum Þau skæla útaf blóðugum rjúpu hróunum Þú finnur þig í ljóðunum sem flæða útur lóunum Tíminn hann er blekking og við skulum bara lóga' honum Komandi' út úr rjóðrunum við fylgjum hestaslóðanum Heyrum við í trylltum hófunum og mætum villtu stóðunum Við komum þeim að óvörum, það endar ekki' í óförum Það gæti hent með óvönum, fálkinn sem er fróður um Hætturnar í gljúfrunum, varar okkur við með gólunum Við bíðum ekki' í sekúndu og hlýðum fálka hljóðunum Hoppum upp á bak og ríðum undan flóðunum