Ísinn er háll, sleipur sem áll. Fellur sá sem ekki nær að fóta sig. Freistingin freistar og fisléttur draumur er þinn. Fáðu mér fé, færðu mér auð. Í staðinn skal ég breyta þér í svartan sauð. Enginn er óhultur, allir fá allskonar boð. En þú skalt athuga vel þinn gang. —Gefðu því gaum hvað er í húfi. Athugaðu þinn gang, —ævin er augnablik.
Athugaðu þinn gang. —Gerðu það gott, en spáðu í spilin. Athugaðu þinn gang, —ævin er augnablik. Galopnast oft gleðinnar dyr. Gáðu samt og gættu þín á góðum byr. Freistingin feykir og flýgur svo með þig á braut. Fyrr en þú ferð færi ég þér örfá orð í nesti eins og vera ber: Enginn er öruggur, allt getur gengið á skjön.