Andartak í myrkri og þögn augnablik, ein agnarögn. Nokkur orð að lokum og dulítið bros sjá, það kviknaði ljós. Fyrst um sinn stólar og borð síðan meir, tvö atviksorð. Eftir það öll árin í aldanna skaut já, og börnin á brott. Þú og ég, við verðum englar eða árar bæði tvö. Þangað til við skulum lifa, þangað til og njóta þess. Það var kalt en síðan svo heitt, það var allt en svo ekki neitt. Skin og skúr og óvíst hvert framhaldið er
en það kemur í ljós, kemur í ljós. Birtu brá, skörp voru skil, svo á ný birti' aftur til. Enginn veit hvað verður um okkur í nótt en það mun koma í ljós. Þú og ég, við verðum englar eða árar bæði tvö. Þangað til við skulum lifa, þangað til og njóta þess. Andartak í myrkri og þögn augnablik ein agnarögn. Nokkur orð að lokum og dulítið bros sjá, það kviknaði ljós, kviknaði ljós. Nananananana nananananana...